Flýtilyklar
Tennis- og badmintonfélag Akureyrar
Tennis- og badmintonfélag Akureyrar heldur úti badmintonæfingum fyrir börn og unglinga. Badminton veitir góða alhliða hreyfingu sem auðvelt er að læra og er íþróttagrein sem hentar öllum. Badminton snýst um tækni, útsjónarsemi, snerpu og úthald.
Badminton er íþrótt fyrir alla - líka þig!
Nýjustu fréttir
-
Sumarćfingar TBA 2010
mánudagur 21.jún.10 14:47 - Kristján Pétur Hilmarsson - Lestrar 34 - Athugasemdir (0)Þá er hlaupaprógramið fyrir restina af júní komið inn. Allar upplýsingar um sumarprógrammið verður að að finna hér til vinstri í valmyndinni undir "Sumaræfingar 2010", og verður allt tengt sumaræfingunum að finna þar.
-
Lokahóf TBA 2010 - myndir o.fl.
mánudagur 7.jún.10 19:28 - Kristján Pétur Hilmarsson - Lestrar 38 - Athugasemdir (0)Lokahóf TBA var haldið fimmtudaginn 20. maí. Boðið var upp á pizzur og tilheyrandi, sjá myndir hér. Þjálfarar TBA, Kristján Pétur, Binna og Laufey veittu nokkrum iðkendum viðurkenningar.
Eftirtaldir á æfingum Kristjáns Péturs hlutu viðurkenningu:
- Elsa Rún fyrir góðan árangur á mótum
- Matthías Már fyrir mestu framfarirnar
- Heiðar Freyr fyrir ástundun
- Páll Axel fyrir keppnisskap
- Helgi sem efnilegasti nýliðinn
- Ivalu Birna fyrir framúrskarandi árangur og mætingu
Eftirtaldir á æfingum Binnu og Laufeyjar hlutu viðurkenningu:
- Tinna fyrir mætingu
- Atli fyrir mætingu
- Friðbjörg fyrir áhuga
- Anton fyrir framfarir
- Katla fyrir árangur
Ég þakka öllum fyrir tímabilið og vona að við sjáumst sem flest í vor þegar æfingar hefjast. Nánar um það síðar hér á heimasíðunni.
Sumaræfingar hefjast fljótlega fyrir iðkendur TBA 14 ára og eldri. Hluti æfinganna fer fram í Þrekhöllinni. Þeir sem hafa áhuga á að æfa í sumar, skrá sig til Kristjáns Péturs, kristjanpetur@hotmail.com eða í 847-6939 sem allra fyrst.
/Kristján Pétur
-
Akureyrarmeistarar í badminton 2010
ţriđjudagur 25.maí.10 22:53 - Kristján Pétur Hilmarsson - Lestrar 57 - Athugasemdir (0)Akureyrarmótið í badminton fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri, laugardaginn 15.maí. Mótið byrjaði kl. 10 og því lauk kl. 15. Úrslit urðu þessi:
Barna- og unglingaflokkur:
- Í 1. sæti einliðaleik varð Grétar Hafsteinn Finnsson og í 2. sæti varð Helgi Brynjólfsson.
- Í einliðaleik vann Katla Mjöll Gestsdóttir og í öðru sæti varð Eydís Helena Leifsdóttir.
- Í tvenndarleik sigruðu Grétar og Harpa Rós Jónsdóttir. Í 2. sæti urðu Helgi og Friðbjörg Sigurbjörnsdóttir.
- Í tvíliðaleik í barna- og unglingaflokki unnu Katla og Eydís og í öðru sæti varð Bjarndís Ragna Brynjarsdóttir og Hörpu.
Unglinga- og fullorðinsflokkur:
- Í einliðaleik kvenna sigraði Ivalu Birna Falck-Petersen og 2. sæti varð Brynhildur Svava Ólafsdóttir.
- Í einliðaleik karla sigraði Ivan Falck-Petersen og í öðru sæti varð Kristinn Jónsson.
- Í tvíliðaleik kvenna unnu Brynhildur Laufey Brynjarsdóttir og Binna. Í 2. sæti urðu Ivalu og Elsa Rún Brynjarsdóttir.
- Í tvíliðaleik karla sigruðu Ivan og Kiddi. Í 2. sæti urðu feðgarnir Leifur Þorsteinsson og Heiðar Freyr Leifsson.
- Í tvenndarleik unnu feðginin Ivan og Ivalu. Í 2. sæti urðu Kiddi og Guðrún Erlendsdóttir.
Myndir frá mótinu er að finna hér.
Heimsóknir
Samtals: 26694