Flýtilyklar
Fréttir
Lokahóf TBA 2010 - myndir o.fl.
mánudagur 7.jún.10 19:28 - Kristján Pétur Hilmarsson - Lestrar 69 - Athugasemdir (0)Lokahóf TBA var haldið fimmtudaginn 20. maí. Boðið var upp á pizzur og tilheyrandi, sjá myndir hér. Þjálfarar TBA, Kristján Pétur, Binna og Laufey veittu nokkrum iðkendum viðurkenningar.
Eftirtaldir á æfingum Kristjáns Péturs hlutu viðurkenningu:
- Elsa Rún fyrir góðan árangur á mótum
- Matthías Már fyrir mestu framfarirnar
- Heiðar Freyr fyrir ástundun
- Páll Axel fyrir keppnisskap
- Helgi sem efnilegasti nýliðinn
- Ivalu Birna fyrir framúrskarandi árangur og mætingu
Eftirtaldir á æfingum Binnu og Laufeyjar hlutu viðurkenningu:
- Tinna fyrir mætingu
- Atli fyrir mætingu
- Friðbjörg fyrir áhuga
- Anton fyrir framfarir
- Katla fyrir árangur
Ég þakka öllum fyrir tímabilið og vona að við sjáumst sem flest í vor þegar æfingar hefjast. Nánar um það síðar hér á heimasíðunni.
Sumaræfingar hefjast fljótlega fyrir iðkendur TBA 14 ára og eldri. Hluti æfinganna fer fram í Þrekhöllinni. Þeir sem hafa áhuga á að æfa í sumar, skrá sig til Kristjáns Péturs, kristjanpetur@hotmail.com eða í 847-6939 sem allra fyrst.
/Kristján Pétur
Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Heimsóknir
Í dag: 94
Samtals: 30103
Samtals: 30103
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni