Tennis- og badmintonfélag Akureyrar

Vefur Tennis- og badmintonfélags Akureyrar

Flýtilyklar

Ferðasögur iðkenda

Hér að neðan er að finna ferðasögur af mótum, æfingabúðum og öðrum viðburðum sem iðkendur T.B.A. taka þátt í.  Iðkendur skrifa ferðasögurnar sjálfir.


Íslandsmót unglinga 2010

Við keyrðum á Akranes fimmtudaginn 4. mars. Við komum seint um kvöldið svo stuttu eftir komu gerðum við okkur til fyrir svefninn. Ivan sagði okkur draugasögu en hún var á grænlensku svo allir sváfu vel. Mótið byrjaði svo á föstudeginum og flestir krakkarnir spiluðu þann dag og allir stóðu sig vel. Þegar allir voru búnir að keppa á föstudeginum fluttum við allt dótið okkar yfir í skólann því við gátum ekki gist í skólanum fyrst því það var skóli á um morguninn. Svo pöntuðum við okkur pizzur og átum öll mikið. Allir vöknuðu snemma á laugardeginum og fóru í morgunmat og svo byrjuðu allir að keppa og allir stóðu sig með prýði. Um kvöldið fóru allir á pizzuhlaðborð og svo var bingó í íþróttahöllinni. Á sunnudagsmorgninum voru allir úrslita og undanúrslitaleikir í einliðaleik og þar áttum við nokkra keppendur og einnig voru úrslitaleikir í tvíliða- og tvenndarleikjum, en Ivalu og Elsa lentu í öðru sæti og Ivalu og Jóhannes, ÍA voru einnig í öðrusæti. Heimför strax að verðlaunaafhendingu lokinni eða um klukkan 3.

Allir stóðu sig eins og hetjur á þessu móti.

Eftir Binnu

 


Unglingamót TBS 2009, Siglufirði

Laugardaginn 28. nóv var mót á Siglufirði. Við lögðum af stað u.þ.b. kl. 07:20. Leifur keyrði Axel, Matta og Heidda en Elsa, Bjarndís og Friðbjörg fóru með Kristjáni. Við fórum lengri leiðina til Siglufjarðar því að Lágheiðin var ófær. Við mættum í íþróttahúsið um 9:45.  Margir voru þreyttir eftir að hafa vaknað snemma en allir stóðu sig ágætlega. Heiddi var greinilega svangur því hann fékk æði fyrir vöfflunum og borðaði mikið af þeim með miklum rjóma :-). Heiðar fékk tvö gull (tvenndar með Elsu og tvíliða með Hrafni, TBS), Elsa fékk þrjú gull (tvíliða með Halldóru) , Axel vann eitt gull (tvíliða með Matta), Matti vann eitt gull(tvíliða með Axel) og eitt silfur (í einliða). TBA-ingar kusu Elsu besta spilarann á þessu móti. Mótið var búið um kl. 5 og þá fórum við að leggja af stað heim. Þegar við vorum komin dálítið áfram þá kom svo mikill snjór og hríð að við sáum ekki neitt og þurftum að keyra á 10 km/klst. um stund en svo varð allt betra og við komum á góðum tíma heim.

Eftir P. Axel Sigurðsson

 


Íslandsmót unglinga 2009 í Mosfellsbæ

Helgina 13-15 mars fór T.B.A á íslandsmót unglinga í Mosfellsbæ. Þeir sem fóru að keppa voru Heiðar, Eydís, Axel, Barði, Eyþór, Ivalu, Elsa, Binna, Tinna, Bjarndís, Linda, Margrét og Matti kom með að horfa á. Þjálfarinn Kristján Pétur og konan hans og svo Friðný sem var farastjóri.
Það var lagt af stað frá íþróttahöllinni á Akureyri kl. 11 á föstudagsmorgun og var komið 16:30 til Mosó. Rétt áður en komið var í Hvalfjarðargöngin ældi Matti, við stoppuðum og hann var þrifin hátt og lágt.
Þegar við komum á Mosfellsbæ var mótið sett kl.17:00 og búið að keppa þann dag um kl. 19:00. Kl. 20:30 var Bingó í skólanum. Gist var í skólanum í Mosfellsbæ. Á laugardeginum var byrjað að keppa kl. 10. Barði var hangandi með Keflvíkingunum allan tíman á meðan á mótinu stóð og Matta, Axeli og Heidda  leist ekkert á það. Svo á laugardagskvöldið fórum við út að borða á Pizza hött sem var fjör.
Svo á sunnudagsmorgunin fengu allir sér morgunmat og horfðu á Ivalu og Elsu keppa til úrslita í tvíliðaleik, en þær töpuðu, en fengu silfur. Svo fengu allir smá tíma til að versla í Kringlunni. Þaðan var lagt af stað kl. 15:00 og komið heim kl. 20.30.

Eftir Heiðar Frey Leifsson 

 


Unglingamót Þórs 7. febrúar 2009, Þorlákshöfn

Föstudaginn 6. febrúar 2009 fór T.B.A. á mót á Þorlákshöfn. Þeir sem fóru að keppa voru ég, bróðir minn hann Heiðar, Matti og Atli. Við fórum á bílnum hans pabba því pabbi var bílstjórinn. Svo fór auðvitað þjálfarinn hann Kristján Pétur með. Við gistum í Grunnskólanum á Þorlákshöfn, sem var fjör, það var þythokký og borðtennis. Á laugardeginum kl. 10 var mótið og búið um 5-6. Það var mjög gaman að keppa, fannst held ég öllum, þetta var líka mitt fyrsta mót. Það stóðu sig allir mjög vel. Ég fékk 1 gullpening, Atli fékk 1, og Heiðar fékk 2 og Matti 1 en peningarnir voru búnir svo Heiðar fékk 1 og Matti engan, en þeir fá þá senda seinna. Síðan fóru allir í góða sturtu og svo heim um 6-leytið.

ENDIR!!!

Eftir Eydísi Helenu Leifsdóttur

 

Mynd augnabliksins

DSC01118_resize.JPG

Heimsóknir

Í dag: 96
Samtals: 30105

Dagatal

« Júní 2010 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Póstlistar


Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf