Tennis- og badmintonfélag Akureyrar

Vefur Tennis- og badmintonfélags Akureyrar

Flýtilyklar

Æfingatímar

Æfingar badmintonfélagsins veturinn 2010-2011 verða í íþróttahúsinu við Glerárskóla nema föstudagsæfingarnar sem verða í Íþróttahöllinni við Skólastíg. Æfingarnar eru ætlaðar börnum, unglingum bæði byrjendum og lengra komnum ásamt eldri spilurum.

Æfingar verða á þessum dögum (hægt er að ná í tímatöflu í pdf skjali hér):

Hópur

Æfingatímar

Mikroton (3-5 ára)

Laugardagar kl. 10-11

Miniton (5-8 ára)

Laugardagar kl. 11-12

Byrjendur 1

Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 16-17

Byrjendur 2

Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 16:30-18

Lengra komnir

Þriðjudagar kl. 17:30-19:30, fimmtudagar kl. 17:30-19 og föstudagar kl. 17:30-18:30

Eldri spilarar

Þriðjudagar kl. 18:30-19:30 og fimmtudagar kl. 18-19

Mikroton er ætlað fyrir krakka á bilinu 3-5 ára og þar er höfuð áhersla lögð á þroskandi leiki.  

Miniton er fyrir yngstu kynslóðina, krakka á bilinu 5-8 ára og byggjast tímarnir upp á leikjum með badmintonívafi sem miðast að því að krakkarnir kynnist badmintonspaða og –kúlu. Þannig læra þeir grundvallartækni í badminton í gegnum leik. Með hverjum krakka í minitonið á að koma eitt foreldri eða t.d. afi/amma sem tekur virkan þátt í tímanum. 

Byrjendur 1 eru krakkar á bilinu 8-14 ára sem vilja læra að spila badminton og hafa ekki spilað/æft eða hafa æft að hámarki 1-2 ár.

Byrjendur 2 eru yfirleitt krakkar á bilinu 10-15 ára sem hafa æft badminton áður a.m.k. 1-2 ár og kunna grunntæknina.

Lengra komnir spilarar eru sterkustu spilarar TBA og eru þeir sem hafa æft í nokkur ár og eru yfirleitt á bilinu 14-19 ára.

Eldri spilarar eru þeir sem eru eldri en tvítugt, hafa spilað/æft áður og hafa áhuga á að keppa á fullorðinsmótum fyrir félagið.

Opinn tími verður á laugardögum milli k. 12-13 og er öllum frjálst að koma við og prófa.

Mynd augnabliksins

P5151451_resize.JPG

Heimsóknir

Í dag: 91
Samtals: 30100

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Póstlistar


Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf