Tennis- og badmintonfélag Akureyrar

Vefur Tennis- og badmintonfélags Akureyrar

Flýtilyklar

Lög TBA

Lög Tennis- og badmintonfélags Akureyrar

Lög Tennis- og badmintonfélags Akureyrar voru fyrst samþykkt á aðalfundi félagsins í janúar 1981 og hefur þeim verið breytt þrisvar sinnum á aðalfundi síðan þá, árið 1984, 1987 og árið 1997.  Á aðalfundi hvert ár eru lögin tekin til endurskoðunar.

Lög Tennis- og badmintonfélags Akureyrar

1. grein
Félagið heitir Tennis- og badmintonfélag Akureyrar.  Heimili þess er á Akureyri.

2. grein
Markmið þess er að iðka tennis og badminton og glæða áhuga á þeim íþróttagreinum á Akureyri.

3. grein
Félagsmaður getur hver sá orðið sem hlýtur samþykki stjórnar félagsins til inngöngu.

4. grein
Árgjald félagsins skal ákveða á aðalfundi ár hvert.

5. grein
Félagsmenn sem ekki greiða félagsgjöld sín í tvö ár samfleytt skulu settir út af félagaskrá.

6. grein
Stjórn félagsins skipa 5 menn:  Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.  Stjórnin skal kosin leynilegri kosningu á aðalfundi, þannig að formaður er kosinn til eins árs í senn, en aðrir stjórnarmenn til tveggja ára, þó þannig að ár hvert sé kosið um tvo þeirra  Einnig skal á hverjum aðalfundi kjósa einn varamann í stjórn til tveggja ára.  Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.

7. grein
Stjórninni ber að gæta hagsmuna félagsins í hvívetna.  Hún fer með umráð yfir eignum þess og boðar til funda.  Hún getur ekki tekið ákvarðanir í meiriháttar málum nema með fulltingi minnst þriggja stjórnarmanna.  Stjórnin getur vikið mönnum úr félaginu, sjái hún til þess gildar ástæður, en þó getur sá sem fyrir slíkri brottvikningu verður óskað eftir því að mál hans verði lagt fyrir félagsfund.

8. grein
Reikningsár félagsins miðast við 31. desember.

9. grein
Aðalfund félgsins skal halda sem fyrst eftir reikningsár og eigi síðar en 15. apríl ár hvert og skal hann auglýstur í blöðum bæjarins með minnst viku fyrirvara.  Rétt boðaður aðalfundur er löglegur án tillits til fundarsóknar, þó má ekki breyta lögum félagsins nema minnst 2/3 hlutar fundarmanna samþykki breytinguna.  Almenna félagsfundi skla halda svo oft sem þurfa þykir og ávallt þegar skrifleg ósk um fund kemur frá minnst 10 félagsmönnum.

10. grein
Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins.  Þar skulu tekin fyrir þessi mál:
1.  Skýrsla stjórnar.
2.  Endurskoðaðir reikningar bornir upp til samþykktar.
3.  Kosning til stjórnar og tveggja endurskoðenda.
4.  Ákvörðun árgjalds.
5.  Lagabreytingar.
6.  Önnur mál.

Í öðrum málum en lagabreytingum ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum.

11. grein
Hætti félagið störfum skal Íþróttabandalag Akureyrar varðveita eignir þess.

Samþykkt á aðalfundi 10.01.1981.
Breytt á aðalfundi 15.06.1984.
Breytt á aðalfundi 10.09.1987.
Breytt á aðalfundi 14.05.1997.

 

 

Mynd augnabliksins

DSC01545_resize.JPG

Heimsóknir

Í dag: 90
Samtals: 30099

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Póstlistar


Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf